Tuesday, December 11, 2007

einu sinni á laugardagskeldi


Helgin var ógeðsleg að vanda, byrjaði laugardaginn á afrísku matarboði, sem innhélt eitthvað stórfurðulegt, plantín og kjúklíng. og hrísgrjón..framandi!

Þar voru kjánirnir frá TVI, ætlaði mér auðvitað ekki að drekka en vegna hópþrýstings skellti ég mig þó nokkrum plastglösum. Þegar ég hafði borðað á mig gat og rúmlega það, ákvað ég að skreppa á sunset strippið með amerísku leikarafélögunum mínum. Yfirgaf því greyið vini mína, enda þekkt fyrir það. Og hoppaði upp í (langar að segja ferraríinn eða eitthvað því um líkt) ahh veit ekki einu sinni hvaða tegund það er, bara eitthvað drasl.

Fórum á klúbb sem kallaður er saddle rangch,þar hitti ég hann herra tarantino, hann var krasí fullur og var að borða andlitið af þó nokkuð hugglegri snót. Stærsti lífvörðurinn hans gaf mér rósir nokkrar. jeij!

Þetta kvöld væri líklegast ekki frásögu færandi hefði ég í fyrsta lagi ekki óvart kveikt í plastbakka og félaga mínum kennt um heimsku þjónsins að skilja bakkan eftir við hliðina á varðeldi. Já þetta er svona kúreka grín staður! Og í öðru lagi fyrir að ég já snillingurinn ég samþykkti að fara upp á vélrænnt naut, sem kastaði hverjum kúrekanum/heimskingjanum af eftir öðrum. En viti menn, hverjum tókst að sitja allan tíman þrátt fyrir snúninga og hristinga og kjánalega reglu sem bannar manni að halda með meira en annari hendi. Svo ég vann flösku af wisky, sem var ömurlegt þar sem ég má ekki fá svoleiðis.

Þriðja lagi ég byrjaði með homma svo nú er ég löggildur hommi.

og já í fjórða og síðasta, sætasta stelpan og barnum, fáránlega hott, kemur upp að mér og segir "I really liked watching you on the bull, you looked very hot" ég:"ehh, thank you,ehh I like your dress" ógeðslega mega hott gellan: "I would love to give you my phone number but I guess you don´t want it" hehe..

5 comments:

Salóme Mist said...

Þetta er án efa skemmtilegasta bloggfærsla sem ég hef lesið lengi! Hljómar eins og ævintýralegt kvöld... hefði viljað vera vitni að þessu ;)

Thorastora said...

OMG, hommi á vélnauti.
Gott að upbyggilegir hlutir eigi sér stað í heiminum.
Mjög heitt Sísí, mjög heitt.

Unknown said...

:)

þetta var fyndin og skemmtileg færsla og hún vann sér inn link á síðunni okkar
:( já ég gleymdi að segja Björgu frá síðunni þinni... og ég gleymdi að setja linkinn upp fyrr... en núna fyrst að þú ert fræg og skemmtileg þá vil ég vera vinur þinn...

:)

Atli Sig said...

Ómægod. Helvítis hommadjöfull.

Sisi said...

I know, mega heitt. haha. Nokkuð viss um að homminn ég fari aldrei upp á slíkt aftur, að minnsta kosti ekki nema að miklir peningar séu í boði, þar sem ég er nú löggildur homni, að ég held,þarf kannski að tjékka á lögum um slíkt.

Og takk Gunnar, fyrir að leyfa mér að vera partur af skemmtilega fólkinu.